Finnbogi Helgason lék sér að því að brjóta saman forsíðu Fréttablaðsins í dag og náði að skapa FRIÐ. Gísli Gíslason, vinur hans, deilir mynd af gjörningnum á Facebook-síðu sinni en á forsíðu blaðsins í dag er að finna mynd af forseta Rússlands, Vladímír Pútín, og António Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, en þeir funduðu við hið margfræga fjögurra metra langa risaborð í Kreml í Moskvu.
Heimsókn Guterres var tilraun til að auka þátttöku Sameinuðu þjóðanna í friðarviðræðum milli Rússlands og Úkraínu.
Gísli segir svo við myndina sem Finnbogi skapaði að kannski þurfi ekki annað en að setjast nær og tala saman til að leysa málin.
Færsluna er hægt að sjá hér að neðan.