Tilboð dagsins hjá Krónunni hefur sannarlega vakið mikla athygli í dag. Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna eru dömubindi til sölu á eina krónu hjá Krónunni.
Netverjar á Facebook grúppunni Síðasti séns! hafa vakið athygli á þessu ótrúlega tilboði og birt myndir úr verslunum Krónunnar. Í auglýsingu sem fyrirtækið sendi frá sér kemur fram að eitt skilyrði sé við þessu tilboði: Aðeins einn pakki á mann.
Óhætt er að segja að dömubindin muni rjúka út úr verslunum Krónunnar í dag.