Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, hafði húmor fyrir gríninu sem gert var að honum og félögum hans í borgarstjórn Reykjavíkur í áramótaskaupinu á gamlárskvöld.
Leikarinn geðþekki, Hilmar Guðjónsson, brá sér í hlutverk Dags í skaupinu og skilaði eftirminnilegri frammistöðu í skaupi sem margir telja það besta frá upphafi. Dagur mætti í sambærilegum fötum og Hilmar klæddist í skaupinu á fyrsta vinnudegi ársins í morgun, þar sem brúni rúllukragabolurinn fékk að njóta sín.
„Mætti að sjálfsögðu í Skaups-fötunum á fyrsta vinnudegi ársins (til hamingju með frábært Áramótaskaup allir aðstandendur!). Spenntur fyrir nýju ári og hækkandi sól - og Diljá Ragnarsdóttir lögfræðingur og nýr aðstoðarmaður - er mætt til leiks. Það eru frábærar fréttir. Hlakka til samstarfsins!“