Mikil úrkoma fylgdi óveðrinu sem gekk yfir landi í gær og í nótt og vöknuðu Mývetningar margir við háa snjóskafla. Birgir Örn Höskuldsson veðurfræðingur hjá Veðurstofunni segir það ekki óvanalegt að það snjói á þessu tíma árs en að magnið hafi verið óvanalegt. Hann segir að það séu ekki margar mælingar enn komnar inn og að það séu að einhverju leyti óáreiðanlegar vegna mikils vinds og því sé ekki mikið jafnfallið og töluvert um skafla. Fréttablaðið greindi frá.
Þær mælingar sem voru komnar inn, við Grímsstaði á fjöllum og í Bárðardal var alhvítt og um tíu sentimetrar af snjó.
Hann segir að veðurspáin hafi að miklu gengið eftir en að úrkoman sé erfið til mælinga í miklum vindi því úrkoman er vanmetin. „Það var mikil úrkoma en óvissan í veðrinu voru áhrifin sem það myndi hafa á innviði og það kemur væntanlega í ljós í dag hvernig það var.“
Margrét Bóasdóttir er stödd í Mývatnssveit og birti í gær bæði myndir og myndskeið af snjó og vindi.
„Myndbandið var tekið í gær. Það er að lægja en það er rosalegur snjór. Bíllinn er kominn á kaf. Við sjáum bara hvíta þúfu fyrir utan dyrnar,“ segir Margrét og hlær létt.
Hún segir að það hafi verið mjög hvasst í gær og að þau komist líklega ekki langt á fólksbílnum sínum í dag. Hún segir að það sé þú búið að ryðja en þau ætli að sjá hvernig staðan verður á morgun þegar þau höfðu planað að fara heim en hún er í heimsókn í sveitinni.
„Það sem bjargaði okkur hérna var að fyrir nokkrum árum brotnuðu allar rafmagnslínur í miklu óveðri og þá var það lagt í jörð. Þess vegna fór það ekki hjá okkur og engin hætta lengur á rafmagnsveseni,“ segir hún.
Hér að ofan og neðan má sjá myndir og myndband sem Margrét birti.
„Við tökum þessu með æðruleysi. Við erum í heimsókn á bernskuheimili mínu. Það er dásamlegt og það væsir ekki um okkur,“ segir hún að lokum.
Hægt er að lesa alla greinina hér.