Mynd dagsins kemur frá Facebook-hópnum Íbúar í Miðborg, en þar hafa skapast eldheitar umræður vegna bílastæða sem eru ætluð rafbílum eru undirlögð af bensínbílum.
Umrædd bílastæði eru fyrir framan Sundhöll Reykjavíkur, en þar er búið að koma fyrir nokkrum hleðslustöðvum. Hins vegar komast rafbílarnir ekki að, þar sem bílar sem nota bensín og dísil hafa tekið stæðin.
„Mikil þörf fyrir fleiri hleðslustöðvar í miðborginni! En að setja þær beint fyrir framan Sundhöllina þannig að stæðin fyllist af bensínbílum sundlaugargesta gerir lítið gagn. Tvo stæði af sex nýtt til hleðslu þegar þessi mynd var tekin kl 11 í morgun,“ segir íbúi á svæðinu sem deildi myndinni.
„Já mjög skrítin ákvörðun og smá pirrandi en ég er mikið í sundi í Sundhöllinni og ef það er laust í þessi stæði þá kann ég ekki við að leggja í þau þar sem þetta eru hleðslu stæði og ég ekki á rafmagnsbíl,“ segir annar íbúi.
Annar íbúi heldur því fram að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sé á bak við þetta. Spurning hversu mikið er til í því.