Báturinn Bjartur í Vík strandaði við strendur Skagastrandar fyrr í vikunni, eins og sjá má á myndinni hér að neðan.
Samkvæmt heimildum Hringbrautar var einn maður um borð í bátnum þegar atvikið átti sér stað. Maðurinn fékk gat á hausinn en það má segja það heppilegt að slys urðu ekki meiri, enda gekk báturinn langt upp á land, eins og sjá má.
Að myndinni að dæma urðu ekki miklar sjáanlegar skemmdir á bátnum.
Lögregluskýrsla var tekin á staðnum, en samkvæmt lögreglunni er hefðbundið verkferli í slysi sem þessu.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa mun rannsaka tildrög slyssins.
Mynd/aðsend