Mynd dagsins: Allt í rusli við Kirkjusand

Íbúar í Laugarneshverfi eru óánægðir með ástandið á byggingarreitnum við Kirkjusand. Svo virðist sem einhverjir óprúttnir aðilar hafi litið á svæðið sem sína eigin Sorpu en þar hefur hrúgast upp alls konar drasl.

Íbúi tók eftirfarandi myndir og deildi á hverfisgrúbbu á Facebook og hefur veitt miðlinum leyfi til að deila með lesendum. Myndirnar eru við limgerði sem skilur að bílastæðið við Kirkjusand og nærliggjandi hús.

„Það er eins og sumt fólk taki það sem gefnu að það geti umgengist opin svæði sem ruslahauga, þarna vex ÿmis gróður yfir sumarið, aspir, birki, víðir og fleira. Mæli með að fólk fái leyfi til að stinga upp og hirða áður en það verður valtað yfir þetta,“ skrifar einn íbúanna.

Íbúar hafa bent Reykjavíkurborg á ástandið og fengið þau svör að þarna eigi að hefjast framkvæmdir innan skamms sem hafa þó tafist vegna ástandsins í ferðaþjónustunni. Svæðið sé ekki borgarland heldur lóð í einkaeigu og því lítið sem Reykjavíkurborg getur gert til að fegra svæðið eða auka notagildi þess.

Fleiri fréttir