Mynd dagsins: Á dýr­grip frá Hall­dóri Lax­ness en veit ekki hvað stendur á honum

Twitter notandinn Anna Björg birti mynd af dýr­grip sem hún á, á­ritað ein­tak af Brennu-Njáls sögu á­ritað af Hall­dóri Lax­ness.

Hall­dór Lax­ness er einn merki­legasti höfundur ís­lenskrar bók­mennta­sögu og er þetta ein­tak af Njálu að öllum líkindum mjög verð­mætt.

Anna bendir hins vegar á að hún hafi ekki hug­mynd hvað Hall­dór skrifaði á blað­síðuna.

„Merki­legasti hlutur í minni 'eigu' er senni­lega þetta ein­tak af Brennu-Njáls sögu á­ritað af Hall­dóri Lax­ness. Verst að ég hef ekki hug­mynd um hvað stendur þarna, fyrir utan á­ritunina til lang­afa míns, sem HL á­varpar sem 'hr. rit­höf.',“ skrifar Anna á Twitter.

Aðrir not­endur á sam­fé­lags­miðlinum voru þó fljótir að koma Önnu til bjargar og benda henni á hvað Hall­dór skrifaði með eigin­handar­á­rituninni.

„"Með kveðju út­gef­enda" sem svo skrifa báðir undir, þ.e. HKL og Ragnar. Þessi út­gáfa þeirra var á læsi­legu máli og olli gríðar­legri hneykslan þess vegna. Ráð­herra lét í kjöl­farið setja lög sem bönnuðu að aðrir en ríkið gæfi út Ís­lendinga­sögur, ef ég man rétt,“ skrifar einn glöggur Twitter-notandi.

Fleiri fréttir