Mótmæla innrás Rússa í Reykjavík, Akureyri og á Reyðarfirði

Innrás Rússa í Úkraínu verður mótmælt á þremur stöðum á Íslandi í dag.

Í Reykjavík klukkan 12 við rússneska sendiráðið og svo klukkan 15 á Glerártorgi á Akureyri og klukkan 15 við torgið við Ægisgötu og Hafnargötu á Reyðarfirði.

Fram kemur í tilkynningu að mótmælin eru skipulögð af Rússum, Úkraínumönnum og íbúum baltneskra ríkja sem búa á Íslandi víða um landið.

„Sunnudaginn 27. febrúar munu íbúar á Íslandi sem eru í áfalli og eru vonsviknir sameinast gegn innrás Rússa. Hundruð rússneskra íbúa, Úkraínumanna, Hvítrússa, Letta, Litháa og Eista sem eru búsett á Íslandi munu, ásamt Íslendingum og íbúum annarra landa, sameinuðu flytja skilaboð sín á mismunandi svæðum landsins,“ segir í tilkynningunni.

Þau krefjast þess að samstundis verði komin á vopnahléi og að rússneskir og hvítrússneskir hermenn hverfi frá landamærum Úkraínu eins og þau voru fyrir árið 2014.

„Við biðjum alþjóðasamfélagið til að styðja við Úkraínu með öllum ráðum til að stöðva stríðið í þessu friðsæla landi,“ segir að lokum.

Fleiri fréttir