Morð í Reykjavík | Lögreglan rannsakar andlát manns á fimmtugsaldri

Lögreglan rannsakar nú hugsanlegt manndráp í austurbæ Reykjavíkur í kvöld.

Karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn og er talið að andlát hans hafi borið að með saknæmum hætti. Þetta segir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við RÚV. Talið er að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti og hefur karlmaður á þrítugsaldri verið handtekinn vegna málsins.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins varð atburðurinn í heimahúsi í Vogunum í Reykjavík.

Von er á tilkynningu frá lögreglu.

Fleiri fréttir