Sædís Hrönn Samúelsdóttir, móðir hinnar tólf ára gömlu Ísabellu Vonar sem steig fram í vikunni og lýsti fólskulegu einelti sem hún hefur mátt þola, hefur svarað fyrir þá gagnrýni sem umfjöllunin hefur fengið.
Eins og Hringbraut greindi frá í gær gagnrýndu margir fréttaflutning af málinu, til dæmis fréttaflutning RÚV í fyrrakvöld þar sem Ísabella las upp skilaboð sem henni hafa borist á samfélagsmiðlum.
Sigurþóra Bergsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Bergsins, sagðist til dæmis hafa horft á fréttaflutning RÚV og fleiri fjölmiðla í forundran.
„Að mæta heim til 12 ára stúlku og móður hennar daginn eftir þeirra allra versta dag. Þar sem allur heimur þeirra er í uppnámi. Umfjöllunin brýtur allar reglur um hvernig fjalla skuli um sjálfsvíg. Ég myndi halda að siðanefnd Blaðamannafélagsins ætti að fjalla um þennan fréttaflutning. Ábyrgð ritstjórna er mikil,“ sagði Sigurþóra.
Sædís Hrönn, móðir Ísabellu, svaraði fyrir þessa gagnrýni í viðtali við DV.
„Það hefur ekkert verið gert án hennar samþykkis. Hún var komin með nóg og vildi að allir vissu hvað væri í gangi. Mér finnst hún ótrúlega hugrökk að stíga fram á þessum tímapunkti og er svo stolt af henni. Þetta er hennar líf og hún stjórnar,“ segir Sædís við DV og bætir við að deila megi um það hvort það hafi verið of snemmt og hvort spurningar fjölmiðla hafi verið hæfi.
„Margir hafa haft samband og beðist afsökunar og hún hefur fyrirgefið sumum en það er algjörlega hennar val. Hún þarf ekki að fyrirgefa neinum ef hún vill það ekki. Hún er viss um að flestir þessir krakkar hafi ekki fattað almennilega hvað þau væru að gera, hvað þetta væri alvarlegt og að þau séu ekki vond. Þau séu líka börn og hafi ekki nógan þroska til að átta sig endilega á aðstæðum,“ segir Sædís við DV.