Unnur Þór Sæmundsson, gjaldkeri Pírata, rifjar upp sögu um vinn sem Albert sem lést aðeins 27 ára gamall vegna ofneyslu vímuefna. Unnar vekur athygli á fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu á Alþingi á morgun sem snýr að afglæpavæðingu neysluskammta vímuefna. Hann segir að ekki hefði verið of seint til að bjarga Albert og mörgum öðrum.
„Portúgal var fyrsta landið í Evrópu til þess að afglæpavæða neysluskammta árið 2001. Með ótrúlegum árangri hefur samfélagslegur vandi tengdur fíkn fallið um allt að 50%. Þrátt fyrir að sérfræðingar hafi fyrirfram spáð aukningu í neyslu ákveðina efna þá hefur neysla allra efna staðið í stað.“
Hann segir þingmenn meirihlutans hafi sagt ótímabært að samþykkja frumvarpið.
„Það gerir mig óendanlega sorgmæddan því ég veit frá fyrstu hendi hvernig vímuefni geta heltekið líf og lagt allt í rúst, ég þekki það líka hvernig núverandi löggjöf viðheldur ástandinu og dregur okkur til baka þegar vel gengur, gerir fíklum þannig erfiðara að skilja við neysluheiminn,“ skrifar Unnar í færslu á Facebook.
Unnar segir núverandi fyrirkomulag búi til glæpamenn úr veiku fólki. Stríð gegn vímuefnum sé í grunninn stríð gegn fólki, veiku fólki að hans mati. „Að vera tekinn ungur með vímuefni getur þýtt að lífið eins og fólk þekkir það sé búið.“
Slík nálgun búi ekki til öruggara samfélag heldur auki á vandann. Hann veltr fyrir sér hvers vegna það sé í lagi að eltast við og refsa einum hóp af veiku fólki en ekki öðrum. Ísland eigi met í dauða tengdum ofskömmtun á Norðurlöndum.
„Einn fíkill er miklu meira en bara fíkillinn sjálfur. Fíkillinn er barn einhvers, systkin, fjölskylda. Fíklar eru foreldrar og makar. Fíkill ætti ekki að þurfa að tengja við aðra, til að vera metin sem manneskja, hver sem er getur verið fíkill og það er enginn stikkfrí.“
Unnar biðlar til þingmanna að leggja pólitíkina til hliðar og samþykkja frumvarpið sem hann telur að yrði mikil bót fyrir samfélagið.
„Við getum ekki beðið, við erum að deyja.“