Minnst 108 smit í gær

Í gær voru greind minnst 108 smit í gær. Frá því er greint á vefnum covid.is Þar kemur fram að rúmur helmingur smitaðra er bólusettur og að aðeins 35 prósent þeirra voru í sóttkví.

Alls eru nú 16 inniliggjandi á spítalanum en í gær voru það 15.

Alls eru nú 1.937 í sóttkví en þeim fækkar um rúmlega 200 milli daga. Í einangrun eru nú 1.304 en þeim fjölgar um 60 milli daga.

Á landamærunum greindist einn einstaklingur með veiruna og var sá óbólusettur. 390 sýni voru tekin við landamæraskimun í gær og eru nú 1.158 í skimunarsóttkví.

Klukkan 11 verður upplýsingafundur almannavarna og munu Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn fara þar yfir stöðu mála.

Fleiri fréttir