Miklar áhyggjur af því að eldri borgarar geti einangrast í faraldrinum

Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, lýsti yfir miklum áhyggjum af því að eldri borgarar geti einangrast í íslensku samfélagi í því ástandi sem upp er komið vegna faraldurs kórónaveirunnar. Þetta kom fram á blaðamannafundi almannavarna.

Á fundinum benti hún á að um tíu þúsund eldri borgarar búi einir í íslensku samfélagi. Hún hvetur fjölskyldur til að standa saman í ástandinu sem upp er komið. Þá hvatti hún sérstaklega aðstandendur aldraðra til að huga vel að þeim og standa með þeim.

Þá vakti Þórunn jafnframt athygli á því að eldri borgarar þurfi að huga vel að næringu sinni á þeim tíma sem framundan er. Líkt og tilkynnt var í gær hefst fjögurra vikna samkomubann á aðfararnótt mánudagsins næsta.

Á fundi dagsins sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn að nú sé búið að taka 1526 sýni og þá eru 156 smit staðfest. Yfir 1400 manns eru í sóttkví og búast yfirvöld við því að sú tala verði komin upp í 1500 fyrir lok dagsins í dag.

Fleiri fréttir