Mið­flokkurinn mælir með nagla­dekkjum

„Ég fagna þeirri breytingu sem boðuð er á reglu­gerð um notkun nagla­dekkja sem felur í sér lengingu leyfi­legs tíma­bils á notkun þeirra,“ sagði Baldur Borg­þórs­son, vara­borgarfulltrúi Mið­flokksins, á fundi um­hverfis- og heil­brigðis­ráðs Reykja­víkur í síðustu viku.

Baldur sagði breytinguna vera já­kvæða að því leiti að hún myndi tryggja betur öryggi veg­far­enda víða um land. „Og ekki er van­þörf á í því veður­fari sem lands­menn búa við og er veturinn í vetur ræki­leg á­minning þar um.“

Hugar að lands­byggðinni

Þá hvatti hann borgar­stjórn til að taka til­lit til þeirra sem á lands­byggðinni búa og þurfa meðal annars að sækja þjónustu til borgarinnar af ýmsum á­stæðum þegar tekin væri á­kvörðun um reglu­gerðina.

„Þeirra öryggi þarf að tryggja. Það eru von­brigði að sjá Heil­brigðis­eftir­lit Reykja­víkur leggjast gegn breytingum sem stuðla að auknu öryggi lands­manna.“

Baldur Borg­þórs­son, vara­borgarfulltrúi Mið­flokksins, segir nagladekk stuðla að öryggi landsmanna.

Leggst gegn boðum og bönnum

Nær væri að fagna breytingunni og nota önnur ráð en boð og bönn til að fá íbúa borgarinnar til að nota annan búnað en nagla­dekk.

„Það er sannar­lega svo að þeir sem á höfuð­borgar­svæðinu búa þurfa ekki á slíkum búnaði að halda nema í al­gjörum undan­tekningar­til­fellum. Höfðum til þeirra að sleppa nagla­dekkjunum án þess að fórna öryggi þeirra sem sannar­lega þurfa á þeim að halda öryggis síns og annarra vegna.“

Tíma­skekkja og aftur­för

Meiri­hluti borgar­stjórnar lagðist þó gegn reglu­gerðinni og sögðu nagla­dekk meðal annars vera eina helstu upp­sprettu lífs­ógnandi svif­ryksmengunar á höfuð­borgar­svæðinu. Auk þess sem nagla­dekkin valda gríðar­miklum og mjög kostnaðar­sömum skemmdum á yfir­borði gatnanna.

„Það er tíma­skekkja og mikil aftur­för að nú eigi að lengja nagla­dekkja­tíma­bilið. Nær væri að stjórn­völd beittu sér fyrir því að draga eins og kostur er úr nagla­dekkja­notkun,“ bókaði meiri­hlutinn.

Fleiri fréttir