Maríanna hvetur neytendur til að vera á varðbergi: „Við verðum að vera meðvituð um að við þurfum ekki allt“

Maríanna Pálsdóttir, snyrti- og förðunarfræðingur og pistlahöfundur á DV, gerir neytendamál að umræðuefni í nýjum pistli, þar sem hún spyr: „Er ég ein um að vera móttækilegasti neytandi í heimi, ég held nefnilega ekki.“ Maríanna segir að hægt sé að selja henni allt ef umræðan er nægilega mikil.

„Undanfarin misseri hefur til að mynda verið nokkuð mikil umræða og vitundarvakning um breytingaskeið kvenna. Og ég tek það fram að sú fræðsla er vissulega mjög góð og nauðsynleg í alla staði, líkt og umræða um ADHD á fullorðins árum og hvað eina sem við miðaldra hópurinn erum að uppgötva fyrst núna af einhverju viti.

Allavega, þá var ég búin að heyra og sjá svo mikið um þessa hluti, og reyndar ADHD-ið líka, og ég var búin að svolgra í mig þessum fróðleik og bara heldur betur ætlaði að tækla þetta breytingaskeið með 10 í lokaeinkunn,“ skrifar Maríanna, sem segist sjálf vera að skríða í fertugt. Því sé ekki seinna vænna en að hefja undirbúning fyrir næsta skeið.

„Eftir lestur á hvers kyns fróðleik pantaði ég mér svo samviskusamlega tíma hjá Arnari Hauks, kvennsanum mínum, til þess að fá almennilega að vita hvað væri best fyrir mig, konu á breytingaskeiði. Ég reyndar lét það ekki bara duga heldur skráði ég mig á paranámskeið á heilsugæslunni, því ekki ætlaði ég nú að lenda í því að mæta eintómu skilningsleysi hjá ástmanninum heima fyrir! Hann skildi sko fá að fræðast um það alla leið hver örlög mín væru, að hafa fæðst í þennan heim sem kona og hvað ég væri nú að ganga í gegnum,“ skrifar Maríanna.

„Það var því smá sjokk að heyra doktorinn staðfesta það við mig þarna í umræddum kvennsatíma að ég væri nú bara enn í fullu fjöri, með eggjaforða í topp standi og fullfær að færa þessum heimi fleiri afkvæmi ef mér hugnaðist svo. Reyndar á ég nú fjögur stykki og græddi svo heil þrjú stykki til viðbótar þegar ég loks festi ráð mitt, svo ég hugsa að nú sé tala heimilismanna bara akkúrat fullkomin. Blessaður læknirinn gat svo reyndar ekkert staðfest með ADHD-ið sem kannski er önnur saga, hver veit,“ bætir hún við.

Maríanna segist fagna allri umræðu og því að almenningur vakni til vitundar um okkur sjálf og það sem sé okkur öllum fyrir bestu.

„En við verðum, að minnsta kosti mínir líkir, að vera meðvituð um að við þurfum ekki allt. Við erum ekki öll eins og þurfum ekkert endilega allt það sem aðrir þurfa. En miðlarnir eiga það til að segja okkur það, stundum jafnvel á svo sannfærandi hátt að jafnvel karlmenn gætu farið að láta athuga með eggjastokkana,“ skrifar Maríanna, og heldur áfram.

„Og talandi um karlpeninginn þá spurði minn maður sakleysislega hvort þetta skeið væri mikið lengra en ein vika, mig langaði pínu að öskra á hann þá. En það sannar þó um leið mikilvægi fræðslunnar… kannski samt bara þegar réttur tími er kominn.“

Fleiri fréttir