Margrét segist hafa verið vakin af vondum draumi

Margrét Krist­manns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Pfaff, þakkar ungum konum fram­göngu þeirra í jafn­réttis­bar­áttunni í nýjustu bak­þönkum sínum í Frétta­blaðinu í dag.

Hún segir að í það séu margar vörður á jafn­réttis­leiðinni og að ó­trú­legt að ekki sé nema rúm öld síðan konur fengu jafn sjálf­sögð mann­réttindi og jafnan rétt til menntunar og kosninga­rétt.

Hún fer í stuttu máli yfir jafn­réttis­bar­áttu síðustu aldar og segir að ný­verið hafi konur af hennar kyn­slóð verið vaktar af vondum draumi þegar ungar konur hófu bar­áttuna á ný.

„En svarið var nei og við vorum vaktar upp af vondum draumi þegar ungar konur hófu af krafti á ný bar­áttu gegn kyn­bundnu of­beldi í kjöl­farið á #MeT­oo. Þol­enda­skömm og ger­enda­með­virkni skyldi aldrei líðast. Þessar ungu konur hafa hlaðið í risa­vörðu á undan­förnum vikum og at­burða­rásin mun hafa varan­leg á­hrif. Við munum ekki síst fá öruggara og manneskju­legra sam­fé­lag,“ segir Margrét og bætir svo við:

„Takk stelpur – takk allar sem hafa varðað leiðina!“

Fleiri fréttir