Margrét Frið­riks selur and­lits­skildi

Margrét Frið­riks­dóttir, einn af stofn­endum Stjórn­mála­spjallsins aug­lýsir nú sér­staka andlitsskildi til varnar veirum líkt og kóróna­veirunni á Face­book síðunni Brask og brall.

Eins og sjá má á skjá­skotinu hér að neðan býður Margrét skjöldinn á spott­prís, eða 3500 krónur stykkið. Margrét hefur vakið mikla at­hygli í sam­fé­lags­um­ræðunni undan­farin ár, meðal annars í vor þegar hún sakaði Guð­mund Frank­lín Jóns­son, þá­verandi for­seta­fram­bjóðanda, um hótanir þegar hún vann fyrir hann við stjórn­mála­aflið Hægri græna.

„And­lits­skjöldur - face shilds, gott fyrir þá sem eru að vinna og þurfa að nota grímu. Verndar bæði þig og aðra fyrir vírusnum. Einnig sam­þykkt á flug­völlum.“

Fleiri fréttir