Útvarpsmaðurinn Máni Pétursson hefur gagnrýnt hversu margir Íslendingar séu í framboði og segir að enginn þeirra hafi neitt að segja.
„1 af hverjum 58 íslendingum er í framboði. Það hefur enginn þeirra neitt að segja og þeir eru í viðtali um ástina. Ég skil 100% alla sem nenna ekki að fara á kjörstað. Þetta er orðin ævintýraleg þvæla.“
Jón Kaldal fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins er ekki sammála Mána og svarar honum:
„Sorrí Máni, vonlaus þessi uppgjöf að mæta ekki á kjörstað. Og hvað? Láta aðra kjósa fyrir þig fólkið sem mótar samfélagið sem þú býrð í? Kemur ekki til greina.“
Á meðan annar Twitter notandi segir:
„Og hvursu margir hafa hundsvit á pólitík?......frægir dregnir fram á listann til að draga að atkvæði.“