Magnús líkir sér við Jón Hreggviðsson í baráttunni við ríkið

„Mikið hefur verið rætt og ritað um þá skekkju sem Ríkisútvarpið veldur á samkeppnismarkaði og Samkeppniseftirlitið hefur ítrekað bent á þann ójöfnuð sem hlýst af ríkisstuddum risa sem leyfir sér að beita stærstu söludeild landsins á viðkvæman markað auglýsingasölu. Hefur stofnuninni jafnvel verið líkt við iðnaðarryksugu í þingsölum en án þess að löggjafinn hafi nokkuð aðhafst,“ segir Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri hjá Símanum, í umsögnsinni um fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðsdóttur.

Þar setur hann sig í spor Jóns Hreggviðssonar í Íslandsklukkunni eftir Halldór Laxness: „Tilgangur fyrirhugaðra lagabreytinga virðist vera að bæta fyrir ranglætið sem ríkisstuddur samkeppnisrekstur veldur með ríkisstuðningi við fórnarlömbin. Vont er þeirra ranglæti, verra þeirra réttlæti.“

Hann er mótfallinn frumvarpinu og vill að Alþingi beini rík­is­stuðningi til fjöl­miðla sem sinni þýðing­um á efni.

„Það er álit Sím­ans að frum­varpið eins og það ligg­ur fyr­ir flæki sam­keppn­ismarkað að óþörfu og geti jafn­vel valdið enn meiri skekkju en nú er til staðar vegna um­svifa rík­is­ins. Fjöl­miðlamarkaður verður ekki eðli­leg­ur fyrr en lög­gjaf­inn kem­ur bönd­um á fíl­inn í her­berg­inu, Rík­is­út­varpið.“

Magnús rekur svo nokkur dæmi um hvernig það er að vera í samkeppni við Ríkisútvarpið:

„1) Árið 2013 setti Síminn á laggirnar áskriftarþjónustu fyrir barnafjölskyldur undir heitinu SkjárKrakkar. Þjónustan naut strax mikilla vinsælda, reyndar svo mikilla að Ríkisútvarpið stofnaði fríþjónustuna KrakkaRÚV árið 2016 henni til höfuðs. Sjálfhætt var með þjónustu gegn gjaldi og rekstrarforsendum kippt undan þjónustu Símans.

2) Síminn komst að samkomulagi við Sinfóníuhljómsveit Íslands að hefja mánaðarlegar útsendingar með svokölluðu Pay-Per-View sniði frá tónleikum í Hörpu. Þjónustan var tilkynnt vorið 2015 og hófst sama haust. Ríkisútvarpið sjónvarp hafði ALDREI sýnt frá tónleikum sinfóníunnar á nærri 50 ára sögu stofnunarinnar en ákváðu að hefja beinar útsendingar það sama haust til að veita Símanum samkeppni. Aftur var sjálfhætt með þjónustu Símans.

3) Síminn hefur nú um 12 mánaða skeið unnið að undirbúningi að menntavef þar sem sækja mætti námskeið og fyrirlestra á framhalds- og háskólastigi auk endurmenntunar. Nýr þjónustusamningur menntamálaráðuneytis við Ríkisútvarpið kom eins og blaut tuska framan“

Fleiri fréttir