Magga Frikka: „Náði loks að smitast og komin með veiruna“

Margrét Friðriksdóttir, einnig þekkt sem Magga Frikka, er búin að smitast af Covid-19 sem hún segist hafa gert viljandi til að fá náttúrulegt mótefni.

Margrét lýsir einkennum sínum í færslu á vefsíðu sinni, Fréttin.is, og hvernig hún hefur notað umdeilda lyfið ívermektín til að slá á einkennin.

„Það var á föstudagskvöldið sem mér fór að líða skringilega, var mjög kalt og fór því í heitt bað en þrátt fyrir það var mér enn kalt og drakk því þrjá bolla af heitu sítrónutei. En allt kom fyrir ekki, ég var að krókna úr kulda. Klæddi mig í hlý föt, því mig grunaði að ég væri komin með veiruna,“ byrjar Margrét sem segist hafa verið svo lánsöm að eiga lyfið ívermektín og öll þau vítamín sem „mælt er með af sérfræðingum erlendis hvað varðar snemmbúna meðferð við Covid.“

Á vef Lyfjastofnunar er fjallað um lyfið Ívermektín og þar er tekið skýrt fram að ekki ætti að taka umrætt lyf, hvorki það né önnur, sem forvörn eða til meðferðar við sjúkdómnum nema læknir hafi ávísað því og uppruni þess sé í samræmi við lög og reglur.

Sjá einnig: Margrét segir samkynhneigð vera val: „Óbólusettir eru líka minnihlutahópur“

Útvegar fólki ívermektín

Daginn eftir fyrstu einkennin ákvað Margrét að fara í sýnatöku og fékk jákvæða niðurstöðu og tók lyfið ívermektin og segir heilsuna hafa verið nokkuð góða eftir það.

„Kuldahrollurinn er farinn og höfuðverkurinn líka en finn fyrir smávegis þyngslum í lungum en er ekki með hósta.“

Margrét segist hafa undanfarið verið að hjálpa fólki með því að útvega þeim ívermektín.

„Allir þeir sem fengu lyfið höfðu samband innan fárra daga og þökkuðu fyrir hjálpina.“

Sjá einnig: Jón: Er þetta ekki komið gott? – Margrét: „Hvað með okkur sem viljum smitast?“

Margrét segir ákveðna meðvirkni í samfélaginu og innan læknasamfélagsins.

„Talandi um meðvirknina í þessu samfélagi þá er frá því að segja að karlmaður sem fékk hjá mér lyfið á fjölskyldumeðlim sem er læknir. Læknirinn gladdist ekki yfir því lyfið hefði hjálpað og komið í veg fyrir að maðurinn endaði á gjörgæslu, heldur fór þess í stað að skamma hann fyrir að taka lyfið sem hjálpaði honum.“

Sömueliðis hafi fólk hótað að tilkynna hana til barnaverndar fyrir að gefa dætrum sínum lyfið þegar þær greindust með Covid.

Fleiri fréttir