Mæla hávaðann í miðborginni eftir ítrekaðar kvartanir íbúa: „Liður í því að bregðast við kvörtunum og sinna rannsóknarskyldu okkar“

Heil­brigðis­eftir­litið setti upp hljóð­mæli á horni Banka­strætis og Lauga­vegs síðastliðinn vegna fjölda há­vaða­kvartana sem hafa borist frá í­búum á svæðinu. Lætin frá nætur­lífinu hafa lengi verið til um­ræðu, en Í­búa­sam­tök Mið­borgar héldu í síðustu viku mál­þing vegna deilna á milli íbúa og skemmti­staða.

„Síðustu helgi var Iceland Airwa­ves í gangi og þá var á­kveðið meðal annars að setja upp mæli á þessu svæði. Út af fjölda kvartana var á­kveðið að setja upp mæli á þessu horni, en þetta er liður í því að bregðast við kvörtunum og sinna rann­sóknar­skyldu okkar,“ segir Helgi Guð­jóns­son, verk­efna­stjóri hjá Heil­brigðis­eftir­liti Reykja­vík.

Helgi segir að með mælinum sé verið að fylgjast með hvað hljóð­stigið sé hátt á svæðinu, en einnig var settur upp mælir inn á skemmti­staðinn Sólon.

„Þetta er gott tól fyrir okkur í vinnslu kvartana og til að fylgjast með því hvort það sé verið að fara eftir settum lögum og reglum. Um há­vaða frá fyrir­tækjum gildir reglu­gerð um há­vaða, og sam­kvæmt henni á sam­komum má ekki vera hærra en 95 desí­bel,“ segir Helgi.

Helgi segir að ef staður gerist sekur um brot geti heil­brigðis­eftir­litið gripið til þvingunarað­gerða.

„Þegar við getum stað­fest það að staður sé að spila of háa tón­list, þá förum við fram á úr­bætur. Ef engar úr­bætur eru gerðar getum við tak­markað starf­semina og meðal þeirra úr­ræða sem við höfum beitt er að tak­markað hljóð­stig á hljóð­kerfi vissa staða og í ein­hverjum til­vikum höfum við tak­markað opnunar­tíma skemmti­staðarins,“ segir Helgi.

Hægt er að lesa um málið á Fréttablaðinu.

Fleiri fréttir