Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, gagnrýnir það harðlega í færslu á Facebook-síðu sinni, að lögreglan hafi um árabil haft vitneskju um mikið magn hefndarkláms gegn íslenskum stúlkum á netinu, sumar á barnsaldri, og hafi ekkert aðhafst en nú þegar fullorðin skipstjóri telur að mögulega hafi kynferðislegt efni verið afritað úr síma hans og birt bregðist lögreglan við af fullum þunga.
Þórdís vísar þar í til máls Páls Steingrímssonar og blaðamannanna fjögurra hjá Kjarnanum, RÚV og Stundinni sem voru boðaðir í skýrslutökur hjá lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra en lögregluembættið rannsakar nú kynferðisbrot gegn Páli Steingrímssyni, skipstjóra Samherja, sem að sögn lögreglu felst í því að blaðamenn hafi veitt viðtöku og miðlað upplýsingum sem hafi innihaldið klámefni úr hans einkaeigu.
„Hér spýtir lögreglan í lófana og fjórir blaðamenn liggja nú undir grun um kynferðisbrot, þótt kynferðisbrotið sjálft liggi ekki fyrir - ólíkt þeim þúsundum mynda af stúlkubörnum sem sannanlega liggja fyrir á vefsíðu sem yfirvöldum er mæta kunnugt um,“ segir Þórdís Elva í færslunni og segir svo:
„Segðu mér hver forgangsröðun þolenda er er án þess að segja mér hver forgangsröðun þolenda er.“
Hún er ekki sú eina sem hefur vakið máls á þessu en Edda Falak, hlaðvarpsstjórnandi, segir á Twitter að fólk þurfi greinilega að vera í „skæruliðadeild Samherja“ svo að lögreglan setji fullan þunga sinn í að rannsaka brot um hefndarklám og líflátshótanir.
Maður þarf greinilega að vera í skæruliðadeild Samherja svo lögreglan rannsaki líflátshótanir og hefndarklám.
— Edda Falak (@eddafalak) February 23, 2022
Þá segir Valgerður Árnadóttir, starfsmaður Eflingar og Pírati, á Facebook-síðu sinni að greinilega þurfi fólk að vera „vel tengdur karlmaður á miðjum aldri“ svo að lögreglan taki það að sér að rannsaka hefndarklám.
Fjallað var um málið á vef Fréttablaðsins en í þeirri frétt má sjá fleiri færslur þar sem rannsókn lögreglunnar er gagnrýnd.
Ef þetta mál með "dreifingu kláms í einkaeigu" fer áfram og jafnvel dæmt í því þá eiga allir þolendur kynferðisbrota skilið afsökun frá lögreglu
— Steinunn🦩 (@SteinunnVigdis) February 23, 2022
Já ok sæll pant hlusta á næsta þátt @eddafalak pic.twitter.com/hLa7grLp9r
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) February 23, 2022
Ég hugsa í dag til allra sem hafa kært stafrænt kynferðisofbeldi og lögreglan ekki gert skít!
— Steinunn Ýr (@steinunn_yr) February 23, 2022
Hvernig væri nú að @logreglan færi að rannsaka kynferðisafbrot og kynbundið ofbeldi jafn hratt fyrir öll kyn og óháð stöðu í samfélaginu? https://t.co/6SYJGOEZkN
— Ólöf Tara (@OlofTara) February 23, 2022
Hvet öll þau sem hafa orðið fyrir hefndarklámi að kæra það strax. Lögreglan ætlar greinilega að boða yfirheyrslur hið snarasta og ganga í þessi mál. Annað væri mismunun.
— Kristín Soffía (@KristinSoffia) February 23, 2022
Nú er ég búinn að fela nektarmynd af mér í stellinu á hjólinu, hurðarfalsinu á bílnum og bak við skjáinn á tölvunni. Topp þjónusta framundan ef þessu verður einhvern tímann stolið!
— Eiríkur Rafnsson (@eirikurrr) February 23, 2022