Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk í dag tilkynningu um mann með sveðju í miðborginni og mann sem veifaði hníf í Miðtúni. Síðarnefnda atvikið var til umfjöllunar fjölmiðla síðdegis í dag. Greint er frá þessu í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Í fyrra atvikinu var lögreglu tilkynnt um mann með sveðju í miðborginni um sjöleitið í morgun. Fram kemur að hann hafi ekki fundist þrátt fyrir mikla leit.
Í hinu síðara var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna manns í geðrofsástandi, sem veifaði hníf. Í dagbókinni segir að lögreglan hafi tryggt viðkomandi og komið honum í læknishendur. Fram hefur komið að óskað hafi verið eftir aðstoð sérsveitar í því máli.