Lýsa eftir Ragnari | Björgunarsveit við leit á Völlunum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ragnari Borgþóri Ragnarssyni, 30 ára, en síðast sást til ferða Ragnars við Ásvallalaug í Hafnarfirði kl. 15:30 í dag.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að Ragnar er klæddur í ljósa peysu og gráa ullarpeysu undir henni. Hann er í gráum buxum og skær grænum/gulum skóm og með blá/grá röndótta húfu. Ragnar er með dökkt hár og skegg. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ragnars eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.

Í íbúagrúppunni Vellirnir mínir er verið að ræða leitina en þar kemur fram að fjöldi björgunarsveitamanna sé við Bónus á Völlunum.

Fleiri fréttir