Tveir erlendir karlmenn voru handteknir við lok síðasta mánaðar fyrir að reyna að smygla inn í landið 833 oxycontintöflum í nærbuxum sínum. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum að tollverðir hafi stöðvað mennina en þeir flugu til landsins frá Varsjá í Póllandi.
Í tilkynningunni kemur fram að húsleit hafi verið gerð hjá karlmanni sem var talinn tengjast mönnunum tveimur. Þar fundust vímuefni og sterar auk talsverðra fjármuna.
Lögreglan segir að fyrr í sama mánuði hafi þau einnig handtekið annan karlmann með 1.301 oxycontin-töflu í nærbuxunum. Hann kom einnig til landsins frá Póllandi.