Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sleppt tveimur mönnum úr haldi sem handteknir voru í tengslum við rannsókn á andláti konu nú um helgina.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu, en þar kemur fram að þessi ákvörðun hafi verið tekin eftir að niðurstaða réttarmeinafræðings lá fyrir í málinu, en hann komst að þeirri niðurstöðu að áverkar á hinni látnu hafi ekki leitt til andláts hennar.
Því er ekki lengur grunur um að andlátið hafi borið að með refsiverðum hætti.
„Við skoðun lögreglu og réttarmeinafræðings á vettvangi í upphafi málsins, komu fram margir óljósir þættir sem þörfnuðust frekari skoðunar. Af þeim sökum voru tveir menn handteknir sem höfðu tengsl við hina látnu.“ segir í tilkynningu lögreglunnar.
Þar kemur þó fram að rannsókn lögreglu á málinu sé ennþá í gangi, en að ekki verði veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.a