Lögreglan lýsir eftir 65 ára gömlum karlmanni: Sást síðast á fimmtudagsmorgun

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sigurði Kort Hafsteinssyni, 65 ára.

Fram kemur í tilkynningu lögreglunnar að hann er 184 sentimetrar á hæð, grannvaxinn og með grásprengt hár.

Sigurður er klæddur í bláar gallabuxur, dökkbláan jakka og með húfu (hugsanlega rauða). Síðast er vitað um ferðir Sigurðar í vesturbæ Kópavogs snemma á fimmtudagsmorgun, 17. febrúar.

Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Sigurðar, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.

Fleiri fréttir