Lög­maður Ingós Veður­guðs: „Ég er mjög undrandi, ég bjóst alls ekki við þessu“

Sindri Þór Sig­ríðar­son var sýknaður af öllum kröfum Ingólfs Þórarins­sonar, eða Ingós veður­guðs, í meið­yrða­máli sem hann höfðaði gegn honum vegna um­mæla á Inter­netinu.

Frétta­blaðið greindi frá þessu fyrr í dag.

Auður Björg Jóns­dóttir, lög­maður Ingólfs Þórarins­sonar eða Ingós Veður­guðs, var undrandi yfir sýknunni og segist ekki hafa búist við þessu.

„Ég er mjög undrandi, ég bjóst alls ekki við þessu,“ segir Auður Björg og bætir við að niður­staðan hafi ekki verið á þá leið sem hún teldi réttast, málið færi til Lands­réttar og það yrði að koma í ljós hvernig það fer.

Að­spurð hvað henni þætti skrýtið við niður­stöðuna segir Auður Björg skrýtið að sýkna á þeim grund­velli að ein­hver segi eitt­hvað og svo tveimur vikum síðar segi við­komandi að hann hafi ekki verið að meina það heldur eitt­hvað annað.

Að sögn Auðar Bjargar væri eðli­legast að þeir sem ætla að vera með „svona gífur­yrði“ standi við þau.

Fréttina í heild sinni má lesa hér.

Fleiri fréttir