Arnar Pétursson og Logi Geirsson bregðast við gagnrýni sem Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari karlaliðsins í handbolta, lét falla um þeirra störf í HM-stofunni á RÚV.
Eftir tap Íslands gegn Sviss og Frakklandi var ljóst að Ísland væri úr leik á HM í handbolta og lýkur keppni eftir milliriðlana sem klárast um helgina.
Guðmundur sagði í viðtali eftir leikinn að ummæli Arnars og Loga, um að liðið væri ráðalaust, væru niðrandi. Arnar sagði að hann og Logi væru alls ekki hafnir yfir gagnrýni en að þeir hafi þó reynt að vera kurteisir og jákvæðir. Segir hann gagnrýni hans og Loga eftir leik Íslands á móti Sviss vera verðskuldaða.
„Ég er hissa á Gumma og ég er hissa á þessum viðbrögðum. Mér finnst þetta sorglegt fyrir handboltann,“ sagði Arnar.
Logi bætti við: „Það er svo margt sem passar ekki í þessu. Staðreyndir og rök halda, ekki tilfinningar.“