Logi Bergmann var bjartsýnin uppmáluð þar til aukaverkanirnar gerðu vart við sig

Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson skellti sér í bólusetningu í Laugardalshöllinni síðastliðinn fimmtudag. Bólusetningar hafa gengið býsna vel að undanförnu og eru þeir sífellt fleiri sem komnir eru með vörn gegn COVID-19.

Logi Bergmann skrifaði býsna skemmtilegan pistil í Morgunblaðið um helgina þar sem hann fjallaði um reynslu sína af bólusetningunni. Segja má að síðustu dagar hafi verið nokkuð erfiðir hjá Loga ef marka má pistilinn. Hann fékk nefnilega slæmar aukaverkanir af bóluefninu og þá tókst honum að fljúga á hausinn í Vesturbæjarlauginni með þeim afleiðingum að hann fékk slæman skurð á olnboga.

Logi var þó bjartsýnin uppmáluð í hádeginu á fimmtudag eins og hann lýsir í pistlinum:

„Ég geng út úr Laugardalshöllinni með bros á vör. Búinn á árgangsmóti sem var betur skipulagt en brúðkaup hjá áhrifavaldi. Búinn að hitta fólk sem ég var með í skóla, hlusta á plötusnúð sem hélt uppi stuðinu og nú bólusettur til hálfs. Heiður himinn, sólin leikur við mig og ég fæ þessa frábæru tilfinningu að það sé allt að koma. Landið virðist vera að fyllast af ferðamönnum, goretex er orðið ráðandi efni í bænum,“ segir Logi en aukaverkanirnir fóru að gera vart við sig aðfaranótt föstudagsins.

„Föstudagur: 02.25 Ég er kominn með aukaverkanir. Hita og orðinn slappur. Get ekki sofið. Veit ekki alveg hvort ég er með beinverki því mér tókst að fljúga á hausinn í Vesturbæjarlauginni og er einn stór marblettur og með myndarlegan skurð á olnboganum. Golfsumarið í óvissu. Ég man að ég á eftir að skrifa pistil og allt í einu er ég ekki jafn bjartsýnn,“ segir Logi en margar spurningar fóru í gegnum kollinn á honum.

„Hvað ef það kemur upp enn eitt hópsmitið? Rétt þegar við höldum að við séum komin í öruggt skjól. Það hefur nú gerst áður. Eða ný stökkbreyting? Hvað ef þetta eldgos hættir? Sveiflurnar í því eru eins og hjá unglingi á miðju gelgjuskeiðinu. Við getum séð gosið á vefmyndavélum og það er eins og að vaka yfir einhverjum með kæfisvefn. Maður heldur að hann sé hættur að anda og svo rýkur hann upp með látum. 12.25 Hitinn er að lækka. Það var verið að tilkynna afléttingu á fjöldatakmörkunum. Það er föstudagur og helgi full af sól framundan. Þetta hlýtur að reddast. Það gerir það venjulega.“

Fleiri fréttir