Logi Bergmann Eiðsson, fjölmiðlamaður er einn fjórmenninganna sem nefndir hafa verið í tengslum við frásögn Vítalíu Lazarevu. Vítalía sagði í samtali við hlaðvarpið Eigin konur, sem Edda Falak stýrir, frá kynferðisofbeldi sem hún sagðist hafa orðið fyrir af hálfu kærasta síns og þriggja vina hans í sumarbústaðaferð í desember í fyrra. Fjórir karlar sem allir eru áberandi í viðskiptalífinu hafa tekið sér tímabundið leyfi frá störfum vegna málsins og var Logi einn af þeim.
Logi segir í yfirlýsingunni:
„Ég er saklaus af þeim sökum sem á mig hafa verið bornar undanfarna daga. Ég hef alla mína ævi haft andstyggð á hvers kyns ofbeldi, staðið með fórnarlömbum þess og stutt baráttu þeirra í gegnum tíðina. Ekkert er fjær mér en að þröngva annarri manneskju til kynferðislegra athafna.“
Hann bætir þá við:
„Ég er hins vegar sekur um að hafa farið yfir mörk í einkalífi fólks með því að hafa farið inn í herbergi sem ég átti ekki að fara inn í. Það var taktlaust og heimskulegt og ég hef þegar tjáð viðkomandi að ég taki ábyrgð á því og mér þyki það leitt.“
Að lokum segist hann ekki ætla að tjá sig meira um málið.