Löggu­tíst veldur usla: „Er ekki alveg í lagi með ykkur?“ -„Af hverju er verið að pósta þessu“

Lög­regl­an heldur uti í kvöld og nótt halda úti löggu­tíst­inu (#löggu­tíst), en þar gefst al­­menn­ingi færi á að fylgj­ast með hinum ýmsu við­fangs­efn­um lög­regl­unn­ar í tólf tíma.

Hægt verður að fylgj­ast með löggu­tíst­inu hér á mbl.is og mun löggu­tístið standa yfir frá klukk­an 16:00 í dag til 04:00 í nótt eða í tólf tíma.

Það tók þó ekki langan tíma fyrir net­verja að verða reiðir út í lög­regluna er hún tísti um út­kall klukkan hálf fimm. „Til­kynnt um unga konu að betla pening fyrir utan Nettó.“ Skrifaði lög­reglan.

Haukur Braga­son reið fyrstur á vaðið og sagði „Var brugðist við því?“

Lög­reglan svarar honum að það sé brugðist við öllum út­köllum og reynt að lið­sinna – það er ekki bannað að betla, eitt og sér.

„Út­köllum? Var þetta út­kall? Fór lög­reglan á staðinn eftir til­­­kynningu um konu að betla?“ segir þá Haukur.

„Er ekki alveg í lagi með ykkur? Hver er til­­­gangurinn með þessu tísti?“ spyr Ingunn Lofts­dóttir.

„Sama og öll önnur í kvöld - @löggu­tíst er til þess að vekja at­hygli á öllum þeim ara­grúa og fjöl­breyti­­leika verk­efna sem lög­reglan sinnir. Í kvöld 16-04 munum við segja frá öllum verk­efnum sem okkur berast,“ segir þá lög­reglan.

Eiður Marvin leggur síðan orð í belg og spyr af hverju það er verið að pósta þessu. „Kannski er þetta stelpa í mikilli neyð og vantar mat?“

Lög­reglan svara Eið með „Og ein­mitt þess vegna förum við á vett­vang.“ Sveinn spyr þá lög­regluna hvort hún ætli að gefa henni mat eða pening.

„Lög­reglan getur t.d. haft milli­­­göngu um að koma fólki til þeirra sem geta veitt að­­stoð, sé fólk í neyð,“ segir þá lög­reglan.

„Lelegt hjá ykkur. Til­hvers að ýta undir það að þeir sem níðast á þeim sem þurfa að byðja um hjálp í þessari verð­bólgu geri það meira?“ segir Guð­rún Ósk. Lög­reglan biður hana um að út­skýra nánar þar sem þeir skilja ekki alveg hvert hún er að fara með þetta tíst.

„Það eru tröll hér útum allt á twitter sem hafa níðst all veru­­lega á mann­eskjum hér og þar fyrir að vera byðja um að­­stoð. Og þetta tweet ykkar er bara fara láta hlakka í þeim að gera meir að því. Aumingja konan,“ segir Guð­rún þá.

En fjöl­margir gagn­rýna tíst lög­reglunnar.

Fleiri fréttir