Lofar að mála regn­bogann sjálf á Skóla­vörðu­stíg

Ragn­hildur Sverris­dóttir, al­manna­tengill og fyrsta konan sem var kosin í sjó­rn Sam­takanna 78 óskaði eftir svörum á Face­book síðu sinni frá fram­bjóð­endum á vina­listanum sínum um hvort regn­boginn fái að vera á­fram á neðan­verðum Skóla­vörðu­stíg.

Regn­boginn hefur orðið tákn LGBTQ hreyfingarinnar og segir Ragn­hildur að hann hafi fengið varan­legan sess árið 2019, en nú virðast nýjar hug­myndir að skipu­lagi götunnar ekki gera ráð fyrir honum.

„Það sem verra var, enginn virtist hafa leitt hugann að regn­boganum, en svo fór hver um annan þveran að lofa því að honum yrði alveg örugg­lega komið vel fyrir á ein­hverjum öðrum stað, ein­hvern tímann,“ segir Ragn­hildur og óskar svo eftir svörum frá fram­bjóð­endum í Face­book­vina­hópi: „Munt þú leggja þig fram um að tryggja að regn­bogi hin­segin fólks verði á­fram á Skóla­vörðu­stíg?“

Þór­dís Sigurðar­dóttir sem sækist eftir odd­vita­sæti Við­reisnar í Reykja­víkur­borg svarar kalli Ragn­hildar og segir: „Ég skal mála hann sjálf - i al­vöru“.

Pawel Bar­toszek borgar­full­trúi Við­reisnar segist ætla leggja fram til­lögu á næsta fundi skipu­lags­ráðs að það verði myndaður hópur með að­komu Borgar­hönnunar, Mann­réttindar­skrif­stofu, Hin­segin daga og Sam­takanna 78 sem gera til­lögu að varan­legri stað­setningu Regn­bogans.
„Ég hef borið erindis­bréfið undir alla og skynja góðan anda í að vinna þetta hratt og vel og í breiðri sátt,“ segir Pawel.

Fleiri fréttir