Litla Hraun og Hólmsheiði hafi verið mistök: „Í anda Ameríku, lokuð og leiðinleg“

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga á Íslandi, gagnrýnir harðlega fyrirhugaða lokun fangelsisins á Akureyri. Hann segir að núverandi fangelsiskerfi og viðhorfið í kerfinu framkalli nýja glæpi en að fangelsið á Akureyri sé helsta viðspyrnan gegn því. Hann skrifar um mikilvægi þess að draga úr afbrotum í grein í Fréttablaðinu í dag.

Hólmsheiði í anda Ameríku

„Afstaða telur að bygging Litla-Hrauns, fangelsisins með útsýnisturninum, hafi verið mistök. Eina ástæða þeirrar byggingar hafi verið að skapa störf í heimabyggð þáverandi dómsmálaráðherra. Mistökin voru endurtekin með byggingu fangelsisins á Hólmsheiði. Hólmsheiðin er í anda Ameríku, lokuð og leiðinleg. Þar gerist ekkert annað en að menn og konur stara á veggi. Fangar sem koma þaðan út hafa ekki hlotið neina endurhæfingu og þess vegna er líklegra að þeir séu sendir aftur á Hólmsheiði.“

Kasta fram hugdettum án rannsókna

Guðmundur Ingi segir að fangar, sem fluttir hafa verið til Akureyrar, hafi náð árangri í lífinu. Fangelsið sé líklega árangursríkasta tækið í að draga úr ítrekun afbrota. Starfsfólkið sé til fyrirmyndar og vinnur í nálægð við fanga á mannlegum nótum.

„Það er í raun óþolandi að sífellt sé verið að kasta fram hugdettum sem verða að veruleika án þess að það sé kannað ofan í kjölinn hversu góðar þær eru. Kerfið ætti að byrja á því kynnast fangahópnum, flokka hann og meta, greina áhættu sem fylgir hverjum og einum og haga sér eftir því. Með þeim hætti mætti hagræða í kerfinu og vinna að hagsmunum samfélagsins,“ skrifar Guðmundur og ítrekar að biðlistar í fangelsi séu langir og veltir upp spurningum um hvers vegna rými í fangelsum séu ekki betur nýtt.

„Líklega vegna þess að fréttir af biðlistum eru tæki til að auka fjármagn til kerfisins. Þessi aðferð er vel þekkt og notuð víða. Andstæðan eru fréttir um það hversu fáir fangar eru á hverja 100 þús. íbúa á Íslandi. Þær fréttir eru settar fram til í kerfinu til að láta líta út fyrir að íslenska kerfið sér skilvirkt. En hvað gerðist ef allir á biðlista yrðu settir inn. Þá yrðu líklega fleiri fangar á Íslandi miðað við höfðatölu en í Rússlandi og Bandaríkjunum.“

Að lokum kallar Guðmundur eftir því að markmið séu skilgreind áður en farið er að loka góðum úrræðumþ

Fleiri fréttir