Linda Pé fimmtug og aldrei betri: Hugarfarið aðalvinnan

Linda Pétursdóttir varð fimmtug í hittifyrra og þó hún hafi enn ekki haldið upp á tímamótin vegna heimsfaraldurs og samkomutakmarkana segist hún fagna hverju ári sem bætist við lífið og hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að blómstra.

„Ætli ég hafi þó ekki farið að njóta hans og kannski þorað að sýna enn meira núna eftir að ég varð fimmtug. Mig langar nefnilega að sýna konum, að allt er hægt. Við þurfum ekki að hætta að vera kynverur og líta vel út þótt árin færist yfir. Síður en svo!“ segir Linda Pétursdóttir í helgarviðtali í Fréttablaðinu í dag.

Linda fer yfir ferilinn, samböndin og sjálfsmyndina.

„Ég þurfti þó að þjálfa sjálfa mig í gegnum það að fara í þessa myndatöku því við Ásta vorum búnar að ákveða að ég skildi sýna leggina. Það var miður uppbyggilegt samtal sem ég átti við sjálfa mig, um hvað ég, kona komin yfir fimmtugt, væri að fara að sýna á mér leggina, og allskyns aðra fordóma gagnvart sjálfri mér,“ segir Linda.

Linda hefur átt í þónokkrum samböndum og segir um ástina:

„Tilfinningin að vera ástfangin er dásamleg. Ég á góð ástarsambönd að baki en trúi því enn fremur að lengd sambands segi ekki endilega til um gæði þess. Þar til ég kynnist þeim manni sem ég tel vera góðan lífsförunaut sem bætir líf mitt meira en ekki, þá kýs ég að vera ein. Ég er mjög sjálfstæð á allan máta. Ég hef góða reynslu í að vera ein og er sátt, en ég er líka opin fyrir möguleikum ástarinnar.“

Viðtalið er hægt að lesa í heild sinni hér.

Mynd/Ásta Kristjánsdóttir

Fleiri fréttir