Líkir vinnu Þor­björns fyrir Sam­herja við kamar­hreinsun

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wiki­leaks, líkir vinnu Þor­björns Þórðar­sonar, fyrr­verandi frétta­manns Stöðvar 2, fyrir Sam­herja við kamar­hreinsun. Til­efnið er mynd­bandið sem kom út frá fyrir­tækinu á dögunum en Stundin full­yrðir að Þor­björn hafi komið við sögu í gerð mynd­bandsins.

Líkt og al­þjóð man lík­legast er því haldið fram í mynd­bandi Sam­herja að Helgi Seljan hafi árið 2012 byggt um­fjöllun sína um meint brot Sam­herja á gjald­eyris­lögum á breyttum og/eða fölsuðum gögnum sem sögð voru frá Verð­lags­stofu skipta­verðs.

Þor­björn Þórðar­son var fenginn til ráð­gjafar Sam­herja síðasta haust. Var það í kjöl­far um­fjöllunar Kveiks, Stundarinnar, Wiki­leaks og Al Jazeera um meintar mútu­greiðslur fyrir­tækisins til stjórnar­manna í Namibíu til þess að komast yfir hesta­makríl­s­kvóta þar í landi.

Kristinn Hrafns­son fer hörðum orðum um þátt Þor­björns í gerð mynd­bandsins og störf hans fyrir Sam­herja. Hann nefnir frétta­manninn ekki á nafn en nokkuð ljóst að þar á hann við Þor­björn.

„Fjós­haugurinn tók jóð­sótt og fæddi lítinn lort. Þor­steinn Már og hans sam­herjar náðu ekki að kasta honum langt og sitja sjálfir með hann í fanginu. Sjón­varp Sam­herja skorar ekki hátt þótt hún skreyti sig fyrr­verandi rann­sóknar­lög­reglu­manni sem stökk yfir gerðið og gékk í lið­sveit hinna,“ skrifar Kristinn.

„Né heldur er skraut í starfi frétta­mannsins fyrr­verandi sem sér­hæfir sig nú í ein­hverju sem kalla má al­manna­tengsla­lög­fræði sem tengist sann­leiks­leit blaða­mennskunnar jafn­mikið og kamar­hreinsun kokka­starfi.“

Fleiri fréttir