Líf Söndru breyttist í martröð þegar sonur hennar lést skyndilega vöggudauða

Líf Söndru Ýrar Grétarsdóttur varð að martröð þann 21. júní 2012, þegar, Gabríel Reynir, 18 mánaða sonur hennar, vaknaði ekki upp úr svefni. Niðurstaða réttarmeinafræðings var sú að Gabríel hefði dáið vöggudauða og Sandra þurfti ein að takast á við verstu martröð allra foreldra, þá aðeins 18 ára gömul.

Sandra segir frá þessum örlagaríka degi og því sem gerðist í framhaldinu í einlægu og opinskáu viðtali í fyrsta þætti hlaðvarpsins Móðurlíf. Í viðtalinu segir Sandra frá því hvernig slúðursögur um andlát Gabríels bættust ofan í óyfirstíganlega sorg, sem á endanum leiddi út í mikla fíkniefnaneyslu til að deyfa sársaukann. Í kjölfarið tókst hún á við uppeldishlutverkið eftir að hafa eignast Magdalenu Mjöll.

Sandra kenndi sér lengi um andlát Gabríels en í þættinum fjallar hún opinskátt um hvernig hún náði botninum í heimi fíkniefna og frá leiðinni að batanum. Henni tókst á endanum að snúa algjörlega við blaðinu en í þættinum segir hún frá því að sársaukinn sem fylgir barnsmissi fari aldrei – þó það sé hægt að lifa með honum.

Mynd/Aðsend

Móðurlíf eru nýir hlaðvarpsþættir í umsjá Díönu Karenar Rúnarsdóttur og Jónu Kristínar Birgisdóttur. Í þáttunum er skyggnst inn í líf mæðra á Íslandi sem hafa fjölbreyttar sögur að segja.

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni hér að neðan.

Fleiri fréttir