Lenya Rún „hella sátt“ við Jakob Bjarnar

Lenya Rún Taha Ka­rim, Pírati, segist „hella sátt“ við Jakob Bjarnar og að pistill hennar, Manneskjan í jakka­fötum, sé mest lesni skoðanapistillinn á vef Vísis á þessu ári en saman­tekt þeirra var birt í dag.

„Nú þekki ég Jakob Bjarnar ekki neitt en ég held að þetta sé fal­leg leið til að skrifa “hvernig í fokkanum var þessi pistill mest lesinn í ár en á­fram gakk” og ég er hella sátt,“ segir Lenya á Twitter en blaða­maðurinn Jakob Bjarnar segir um pistil Lenyu að það komi á ó­vart að pistillinn sé svo víð­lesinn því hann fjalli ekki um hita­mál eða sé um­deilan­legur, heldur sé hann nokkuð hóf­stilltur.

Hægt er að kynna sér pistilinn, auk annarra vin­sælla pistla á Vísi, hér.

Fleiri fréttir