Markús Már Efraím, rithöfundur og ritstjóri, minnist þess þegar menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar skaut niður hugmynd hans að því að reisa styttu af Vladímír Lenín, leiðtoga bolsévísku hreyfingarinnar í Rússlandi á Hagatorgi.
Hugmyndasöfnun fyrir verkefni Reykjavíkurborgar Hverfið mitt lauk þann 20. janúar og var ein vinsælasta hugmyndin í Vesturbænum að setja upp styttu af tónlistarmanninum Kanye West. Í ljósi þess ákvað Markús að deila svari sem hann fékk frá Reykjavíkurborg fyrir sex árum um hugmynd hans að því að reisa 20 metra haá styttu af byltingarleiðtoganum goðsagnakennda.
Tillagan hans fer felld með eftirfarandi rökum:
- „Bygging styttunnar myndi að öllu óbreyttu tæma fleiri en einn sjóð borgarinnar en ánafnað er menningu og listum.“
- „Þegar fé er varið til menningarmála er mikið horft til þess hvaða ávinningur er fenginn með veitingu þess. Ávinningurinn af byggingu styttunnar er óljós.“
- „Óljóst þykir hvernig Lenín er táknmynd við hæfi þegar kemur að tengslum Íslands og Rússlands.“
- „Bygging styttunnar fellur ekki að menningarstefnu Reykjavíkur.“