Leggur til að nota nýja aðferð við áramótaheitin

Sif Sigmarsdóttir er með góð ráð fyrir næsta ár sem eflaust margir gætu tileinkað sér í nýjasta pistli sínum í Fréttablaðinu en hún hvetur fólk, áður en það fer að plana næstu skref og verkefni, að líta yfir farinn veg og hvað mætti betur fara.

„Fátt er skemmtilegra en að leggja drög að nýrri atburðarás. Stundum væri okkur þó hollara að leggjast í endurskoðun á þeim söguþræði sem við höfum þegar skapað,“ segir Sif í pistlinum þar sem hún fjallar um líf og verk kvikmyndagerðakonunnar og rithöfundarins Noru Ephron.

„Eitt af síðustu ritverkum Ephron fyrir andlátið voru tveir listar. Annar listinn samanstóð af því sem hún myndi sakna: Börnin mín, vor, haust, að lesa uppi í rúmi, hlátur, jólatré, vöfflur. Hinn innihélt það sem hún myndi ekki sakna: Tölvupóstur, hárþvottur, fermingarveislur, pallborðsumræður um konur í kvikmyndum,“ segir Sif og hvetur svo fólk til þess að gera öðruvísi lista á næsta ári en fyrri ár.

Pistilinn er hægt að lesa í heild sinni hér á vef Fréttablaðsins.

Fleiri fréttir