„Látið okkur í friði spillingaröfl“

Nokkrir mótmælendur komu saman og héldu mótmælaskiltum að gluggum á Sjálandi í Garðabæ þar sem útsending frá Kryddsíldinni á Stöð 2 fer nú fram.

Á mótmælspjöldum mótmælenda mátti meðal annars sjá skilti sem á stóð á „Látið okkur í friði spillingaröfl,“ og „siðblindur ráðherra.“ Það síðarnefnda beint að Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra eftir atvikið í Ásmundarsal á Þorláksmessu. En fjöldi fólks hefur krafist þess að hann segi af sér.

Bjarni sagði meðal annars í dag að hann teldi að umfjöllun fjölmiðla um hann væri einungis neikvæð og mun neikvæðari en umfjöllun um flesta aðra stjórnmálamenn.

Lögreglan mætti þó á svæðið og mótmælendur yfirgáfu í kjölfarið staðinn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Kryddsíldin er notuð sem vettvangur fyrir mótmæli, t.d. árið 2008 í kjölfar hrunsins en þá náði mótmælandi að stöðva útsendinguna.

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir var valinn maður ársins í Kryddsíldinni í dag. Hann þakkaði alþingismönnum og alþingi fyrir þann góða stuðning sem þau hafa sýnt þeim sem eru í framllínunni.

Fleiri fréttir