Langflestir þeirra sem liggja Landspítalanum með Covid-19 eru óbólusett og með Delta-afbrigði kórónuveirunnar. Þessi segir Þórólfur Guðnason í samtali við Fréttablaðið í dag. Þar kemur fram að á hverjum degi greinist enn um 100 til 120 tilfelli af Delta-afbrigði kórónuveirunnar.
„Alvarlegasta veika fólkið er óbólusett,“ segir Þórólfur
Fram kemur í viðtali við hann að alls liggja nú tvö börn á öðru aldursári inni á Landspítalanum með Covid-19. Tíu börn hafa þurft að leggjast inn síðustu daga. Þá eru tugir barna í ströngu eftirliti Covid-göngudeildarinnar vegna veikinda.
Þórólfur fór yfir það í viðtalinu að bráðlega muni liggja fyrir útfærsla bólusetningar barna á aldrinum fimm til 11 ára á landinu. Líklega verða þau sem búa á höfuðborgarsvæðinu bólusett í skólum.
Þórólfur telur að bólusetja eigi börnin með því bóluefni sem til er í stað þess að bíða eftir nýju bóluefni gegn Omíkron-afbrigðinu. Það verði tilbúið í mars en þá eigi eftir að framleiða það og dreifa því.
„Þó svo að efnið sé tilbúið í mars þá á eftir að framleiða það og dreifa því. Það kæmi ekki fyrr en einhvern tímann seinna og það mun taka tíma.“
En er vörnin nógu góð gegn Omíkron?
„Það hefur verið þannig að hjá fullorðnum að tvær sprautur duga ekki mjög lengi gegn Omíkron-afbrigðinu en þriðja sprautan virðist virka nokkuð vel, sérstaklega gegn alvarlegum veikindum. En það er nú þannig að tvær sprautur hjá börnum vernda mjög vel gegn Delta-afbrigðinu, og betur en hjá fullorðnum og þannig standa vonir okkar til þess að tvær sprautur hjá börnum muni vernda jafnvel betur gegn Omíkron en hjá fullorðnum,“ segir Þórólfur.