Lands­liðs­maður gerir grín að Rikka G – Hlustaðu á upp­tökuna

Út­varps­maðurinn og þúsund­þjala­smiðurinn Rík­harð Óskar Guðna­son, betur þekktur sem Rikki G, átti heldur betur erfitt með koma orðunum út úr sér í Brennslunni á FM957.

Bjarki Már Elías­son, lands­liðs­maður í Hand­bolta og einn besti leik­maður liðsins á HM, var ekki lengi að grípa tæki­færið og birta upp­töku úr þættinum á netið. Hann á­kvað að skjóta létt á Rikka í leiðinni og spyrja hann hvað í ó­sköpunum það væri sem „byrjaði“

„Hvað segiru Rikki? Byrjaði hvað?“ spyr Bjarki Már.

Rikki G svara honum um hæl. „Rosa­­lega erfitt að komast að í þessum þætti!“

Fleiri fréttir