Landsliðið fyrir aðkasti í annað sinn: Hrópað „nauðgarar“ að hópnum

Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, sagði á blaðamannafundi eftir landsleikinn í dag við Norður Makedóníu að í annað sinn á stuttum tíma hafi landsliðið orðið fyrir aðkasti í reglulegum göngutúr sínum fyrir leik dagsins. Hann sagði að í dag hefði verið hrópað að hópnum „nauðgarar“.

Undanfarnar vikur hefur talsvert gustað um karlalandsliðið eftir að í ljós kom að leikmenn innan hópsins höfðu beitt ofbeldi og KSÍ hylmt yfir brotin. Framkvæmdastjóri KSÍ, Klara Bjartmarz, fór í leyfi í síðustu viku auk þess sem stjórnin sagði af sér í kjölfar þess að formaður stjórnarinnar, Guðni Bergsson, sagði af sér.

Fleiri fréttir