Eflingarfélagar af erlendum bergi brotnu koma Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni sínum til varnar í aðsendri grein á Vísi.
Höfundarnir eru þau Barbara Sawka, Ian McDonald, Innocentia Fiati Fridgeirsson, Karla Barralaga Ocón og Sæþór Benjamín Randalsson, sem segjast eiga það öll sameiginlegt að hafa fæðst í öðru landi og unnið láglaunastörf á Íslandi.
„Við höfum öll orðið fyrir misrétti og útlendingahatri á Íslandi. Við erum með hreim og sum okkar eru ekki hvít og þar af leiðandi fáum við spurningar á borð við „hvaðan ertu?“ og setningin sem við notum oftast í samtölum við Íslendinga er „talarðu ensku?“. Sum okkar hafa upplifað verri misnotkun og virðingarleysi. Okkur líður oft eins og annars flokks þegnum. En við höfum aldrei orðið fyrir misrétti er innan Eflingar,“ segir í upphafi greinarinnar.
Höfundarnir segjast hafa verið í áfalli yfir ásökunum um að Sólveig beri ekki hag erlendra íbúa á Íslandi fyrir brjósti. „Þetta er blygðunarlaus lygi sem óvinir hafa dreif til að koma óorði á Sólveigu og B-listann.“
Sólveig deilir greininni á Facebook síðu sinni og þakkar höfundunum fyrir góða grein.