Læknir fær áminningu vegna tveggja alverlegra mála: Sjúklingur upplifði sig „einkar berskjaldaða“

Íslenskur læknir hefur hlotið áminningu, sem hefur verið staðfest af heilbrigðisráðuneytinu. Ástæðurnar fyrir henni eru tvö mál, en annars vegar fékk læknirinn kvörtunar vegna meintrar vanrækslu, mistaka og ótilhlýðilegrar framkomu í garð skjólstæðings. Og hins vegar er mál þar sem skjólstæðingur svipti sig lífi skömmu eftir að læknirinn útskrifaði hann.

Í fyrra málinu kvartaði skjólstæðingurinn yfir meintum mistökum við lyfgjöf, sem og framkomu læknisins. Hún sagði hann hafa talað niður til sín og sýnt henni og sjúkdómi hennar vanvirðingu. Auk þess hafi hann gert lítið úr sjálfsvígstilraunum hennar. Þar að auki á hann að hafa talað niður þær meðferðir sem væru í boði fyrir hana.

Þetta á að hafa valdið sjúklingnum miklu uppnámi sem upplifði aukinn kvíða og þunglyndi. Þá sagði hún sig hafa verið „einkar berskjaldaða á þessum tímapunkti eftir sjálfsvígstilraun.“

Í hinu málinu hafði skjólstæðingur mannsins verið útskrifaður án þess að fyrir lægi fullnægjandi mat á sjálfsvígshættu, en líkt og áður segir framdi hann sjálfsvíg skömmu eftir að hafa verið útskrifaður.

Með því að greina sjúklingin ekki á fullnægjandi og faglegan hátt, og með því að hefja faglega meðferð, eða tryggja eftirfylgd hefði, að mati embættisins, verið hægt að koma í veg fyrir ótímabært dauðsfall.

Fram kemur að heilbrigðisráðuneytið telji lækninn hafi vanrækt starfsskyldur sínar sem ábyrgur læknir og brotið í bága við réttindi sjúklinga.

Fleiri fréttir