Lækna-Tómas: „Hvers eiga sjúklingar þessa lands að gjalda?“

Tómas Guð­bjarts­son eða Lækna-Tómas segir í færslu á Face­book að það sé sorg­legt að horfa upp á bráða­mót­tökuna sökkva í sæ. Hann kallar eftir þverpólitískri sátt til þess að leysa vandann.

Fréttablaðið greindi frá þessu.

Undan­farið hefur verið mikið fjallað um bága stöðu bráða­mót­tökunnar, en nokkrir hjúkrunar­fræðingar hafa sagt starfi sínu lausu vegna slæms á­stands.

„Þetta er ein af lykil­deildum sjúkra­hússins sem hefur verið ströggla svo árum skiptir - aðal­lega vegna flæðis­vanda sem rekja má til úr­ræða­leysis í vistunar­málum aldraðra annars staðar í heil­brigðis­kerfinu, þ.e. vandi sem orðið hefur til utan­húss. Sjúk­lingar eru því bók­staf­lega vistaðir á göngum bráða­mót­tökunnar. Vaxandi mannekla bætist síðan ofan á "flæðisvandann" - sem m.a. stafar af ófullnægjandi kjörum hjúkrunarfólks og aðstöðuleysis í úr sér gengnu húsnæði," segir Tómas.

Hann segir að það sé þjóðar­skömm að ekki sé gripið til al­vöru úr­ræða til að leysa málin.

„Ekki verður við sprækan for­stjóra spítalans og heil­brigðis­ráð­herra að sakast. Þeir hafa virki­lega reynt. Þeir hafa virki­lega reynt - en kalli þeirra virðist ekki svarað. Nú þarf þver­pólitíska sátt um að gera betur í kerfi sem er það al­var­lega statt að lykil­deildir flagg­skips þess - eins og bráða­mót­taka spítalans - þurfa á gjör­gæslu að halda,“ segir Tómas.

„Hvers eiga sjúk­lingar þessa lands - sem oftar en ekki eru aldraðir - að gjalda ? Er þetta þjónustan sem við viljum bjóða upp á? Eða ætlum við Ís­lendingar að falla um deild og bjóða í fram­tíðinni upp á annars flokks heil­brigðis­þjónustu?,“ segir hann að lokum.

Greinina í heild sinni má lesa á Fréttablaðinu.

Fleiri fréttir