\"Það mætti segja að Colō silkislæðurnar séu að einhverju leiti upphafning á þeim sterku öflum og heilindum sem náttúran býr yfir” segir grafíski hönnuðurinn Hrefna Lind Einarsdóttir um útskriftarverkefnið sitt frá Listaháskóla Íslands.
Falleg myndskreyting af níu íslenskum lækningarjurtum prýða Colō silkislæðurnar í bland við náttúruleg form. Jurtirnar níu valdi Hrefna Lind vegna mikilvægi þeirra fyrr á öldum til hjálækninga og tengingu þeirra við hjátrú. “Áður fyrr voru jurtirnar nýttar sem verndargripir og talið að þær byggju yfir galdramætti” segir Hrefna Lind og bætir við að hún hafi skipt þeim niður í hópa eftir líkindum þeirra á kröftunum. “Holtasóley, þjóðarblóm Íslendinga var áður kölluð þjófarót og var talin góð til að draga að sér peninga” segir hún glettin. Silkislæðurnar koma í þremur útfærslum og finna má þrjár ólíkar lækningarjurtir í hverri slæðu. Til að mynda heitir ein silkislæðan Ūnum og hefur þann tilgang að vernda mann frá illu á einhvern hátt.
Við heimildasöfnun og þróun á Colō silkislæðunum leitaði Hrefna Lind til Náttúrufræðistofnunar Íslands og fékk aðstöðu til að ljósmynda jurtasýni stofnunarinnar. Jurtasýnin eru mörg hver í góðu ásigkomulagi og eru sum þeirra allt að 130 ára gömul “Samstarfið var að vissu leiti hugsað til að draga fram á sjónarsviðið alla þá flóru sem stofnunin hefur að geyma og vekja áhuga fólks á þessari deild innan Náttúrufræðistofnunar Íslands” útskýrir Hrefna Lind.
Að hennar sögn er ferlið búið að vera afskaplega fræðandi og gefandi, hún horfir með björtum augum til framhaldsins og að markmiðið sé að skapa heildarpakka í kringum vöruna “Svo leiðir tíminn í ljós hverning verkefnið þróast og hvaða lokamynd það fær á sig” segir hún með tilhlökkun.
Hægt er að fylgjast með afdrifum Colō silkislæðanna og öðrum verkefnum á heimasíðu Hrefnu Lindar, www.hrefnalind.com