„Kæru fyrrum nágrannar, Þið eruð dugleg að hjálpa okkur að hjálpa flóttafólkinu.“
Svona hefst nýleg færsla á Facebook hópinn Langholtshverfi, en þar deilir einn meðlimur hópsins frekar leiðinlegri frásögn af umgengi nágranna sinna.
„En bílastæðið okkar er EKKI ruslahaugur fyrir ryðgað, ónýtt dót og drasl, hálf brauð og tóma sjampóbrúsa,“ segir meðal annars í færslunni.
„A.m.k. tveir hafa notað bílastæðið okkar svona fyrir rusl og drasl!!!!,“ segir sá sem deilir færslunni og lætur þessa mynd fylgja með.